Ferming Júlíu Ýrar – Myndir

Hér koma myndir úr fermingarveislu Júlíu Ýrar. Ég biðst velvirðingar á ruglaðri röð myndanna. Myndagalleríið, sem er innbyggt í WordPress-kerfið sem ég nota hér, vill ekki þýðast mig.

Nokkrar myndir síðan í maí

Emilía æfir sig

Frímann sundgarpur

YouTube Preview Image

Frímann Benedikt hefur æft sund frá því hann var fjögurra eða fimm ára. Hann byrjaði reyndar í ungbarnasundi, síðan krakkasundi, þar á eftir sundskóla Óðins, skjaldbökunum (þar er Ýmir núna), og síðan í hverjum hópnum á fætur öðrum: sæhestum, höfrungum, framtíðarhópi og nú er hann að æfa með úrvalshópi, sem er unglinga- og afreksþjálfun, en yngri krakkar hafa verið dregnir upp í efri hópa undanfarið. Kannski er það aðallega til að gefa aukið rými fyrir fleiri yngri börn í yngri hópunum því sífellt eykst eftirspurnin eftir þjálfun hjá Óðni.

Frímann er núna að æfa fimm sinnum í viku í einn og hálfan tíma í senn og fer auk þess tvisvar í viku í klukkustundar langan þrektíma á undan sundæfingu. Þetta er óneitanlega mjög mikið, en gæti verið enn meira. Við ákváðum að láta á það reyna hvort Frímann vildi halda þessu svona eða fara til baka í framtíðarhópinn en fram til þessa líkar honum þetta vel. Auðvitað er þetta erfitt stundum en lang oftast er þetta mjög skemmtilegt. Sundkrakkarnir eru upp til hópa mjög samrýmdir og skemmtilegir og góðir vinir.

Nú er það líka svo að Frímann stækkar hratt og styrkist allur. Þá er gaman að fylgjast með tímunum og sjá hvernig hann bætir sig í hverri grein. Nú er svo komið, eftir Lionsmót Ránar sem haldið var á Dalvík um síðustu helgi, að það styttist í lágmörk sem sett eru fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands (AMÍ). Þetta mót verður haldið á Akureyri í lok júní en í byrjun júní verður annað mót á Akranesi. Þar gefst gott færi á að ná góðum tímum og komast inn á AMÍ. Það væri ekki lítið gaman fyrir Frímann að keppa við hlið frænku sinnar, Júlíu Ýrar 14 ára, sem er að gera það mjög gott núna og er meira að segja farin að keppa á íslandsmeistaramótum.

Sumarið er komið

Dásamlegt veður hér fyrir norðan núna. Ískuldi og nepja. Viðbjóðslegt!