Emilía Ingibjörg komin til dagmömmu

Á leið til dagmömmu fyrsta sinni
Jæja, nú er sumarið búið. Brynhildur farin að vinna, Ýmir kominn á leikskólann aftur (ekkert allt of glaður með það samt) og nú er Emilía að byrja hjá dagmömmu eða dagforeldrunum þeim ömmu Kollu og afa Tolla. Þessi mynd er tekin í gærmorgun áður en lagt var í hann út í Tungusíðu.
Við höfum verið í miklum framkvæmdum í sumar. Höfum málað húsið allt að utan málarahvítt, bæði veggi og glugga, en útidyr og umgjörðir þeirra með kastalahvítu (aðeins dekkri tónn). Verkin gengu vel og tók mestur hlutinn um 10 daga. Aðeins eru núna eftir einhver smáverk (sem reyndar eru oftast frekar leiðinleg og hafa tilhneigingu til að taka langan tíma).
Hér inni var herbergi Frímanns loksins tekið í gegn. Það hefur, öll þessi fjögur og hálfa ár sem við höfum búið hér verið málað einhverjum kúkalit og alltaf höfum við verið á leiðinni að gera eitthvað í þessu. Nú gerðist það loksins og við máluðum alla veggi Kiddahvíta nema norðurvegginn sem fékk einhvern rauðan lit (kannski má kalla hann Frímannsrauðan núna).
Nokkrar myndir hér fyrir neðan.
- Herbergi Frímanns
- Tilraun með hillu
- Rúmið komið í hornið í staðinn
- Og hillan þar fyrir aftan
- Allt komið á hinn vegginn
- Allt komið á hinn vegginn
- Niðurstaðan. Frímann að fara að sofa loksins í sínu herbergi.
- Brynhildur í essinu sínu
- Grímur fór hamförum
- Grímur gríðarlegur á rúllunni
- Frímann á leið á siglinganámskeið
- Krakkarnir ásamt Þorra bekkjarfélaga
Ýmir Haukur er orðinn 5 ára!
Þetta er að verða ótrúlegt. Hér situr maður og börnin eiga orðið afmæli mörgum sinnum á ári. Núna er það Ýmir Haukur. Hann er orðinn fimm ára. Ég er búinn að kenna honum að reka fimm fingur framan í fólk og segja stoltur: Ég er með fimm háskólagráður! Þessi litli stubbur er orðinn fimm ára. Hann var hálfs árs þegar við fluttum hingað í ByÐeVei 136 og hefur lengst af verið í sömu stærðinni, en nú höldum við og vonum að eitthvað sé að gerast. Hann er a.m.k. mjög stór að innan og heyr gríðarlega sjálfstæðisbaráttu við foreldra sína.
Til hamingju með afmælið Ýmir Haukur!
- Ýmir aðstoðar bróður sinn í sundinu
- Tveir með silfurskeið í munni
- Nýtt hjól í afmælisgjöf
- Perluvinir, Ýmir og Birgir
- Kristnesferð: Birgir, Emilía, Ýmir og Benni
- Emilía og Ýmir
- Ýmir að setja niður kartöflur í Turtlesgalla
- Bræður hátt uppi
- Birgir í mat
- Hringekja í Kjarnaskógi
- Síðasta sundæfingin þennan veturinn
- Ýmir dolfallinn yfir töframanni
Glæsileg Akranesferð
- Frímann og Júlía. Frímann með bronsið en Júlía geymdi peningana sína í bílnum.
- Systrabörnin Frímann og Júlía
Nú eru Frímann og Júlía komin heim eftir góða ferð til Akraness með Óðni. Frímann náði bronsi í boðsundi í 200m skriðsundi og hefði líka átt að fá silfur í öðru boðsundi, en þeir gerðu ógilt. Í einstaklingssundgreinunum stóð hann sig mjög vel og er aðeins hársbreidd frá því að komast inn á AMÍ. Það verður sérstök tímataka haldin 13. júní fyrir þá sem eru á þessum mörkum og þá verður spennandi að fylgjast með. Frímann stefnir ótrauður á að komast inn.
Júlía frænka, 14 ára, stóð sig rosalega vel og raðaði inn verðlaununum, fjórum gullum (þar af tveimur í boðsundi) og silfri og bronsi. Hún er á glæsilegri sigurbraut og verður gaman að sjá hvort hún verði ekki send fyrir hönd Íslands á Ólympíuleika æskunnar sem verða haldnir í Tampere í Finnlandi í júlí n.k.
Hvað gerist ef Vatnajökull hverfur?
Þá verður Langjökull stærsti jökullinn á Íslandi. Þetta sagði Frímann einhvern tíma eftir að hafa heyrt einhverja svartsýnisspána í útvarpinu.
Við vorum að horfa á þáttinn um jörðina núna áðan. Maður verður ekki beint bjartsýnn á komandi tíma.
Akranesleikar að hefjast

Frímann og Júlía á leið á Akranessleika
Nú eru Frímann og Júlía að leggja upp í ferð til Akraness til að taka þátt í Akranesleikum, sundmóti yngri aldursflokka, sem verður haldið um helgina. Frímann syndir eitt sund í dag, 100m bringusund, annað á morgun, 200m bringusund, og síðan þrjú sund á sunnudag, 200m skrið, 100m fjórsund og að lokum 100m skrið. Hann bindur helst vonir við að ná góðum árangri í 100m fjórsundi því hann er alveg að ná lágmarkstímanum sem þarf að fá til að komast á AMÍ, aldursflokkameistaramót Íslands, sem verður haldið hér á Akureyri í lok júní.

Hópurinn að fara að leggja í hann
Júlía Ýr hefur staðið sig rosalega vel, er fyrir löngu farin að keppa á AMÍ og ÍM, og nú er svo komið að Sundsamband Íslands hefur augastað á henni sem einum af fulltrúum Íslands á Ólympíuleika æskunnar sem verða haldnir í sumar. Ekki slæm fyrirmynd fyrir Frímann og gott að hafa frænku sína til að leggja línurnar.
Ég ætlaði að reyna að komast sem fararstjóri á þetta mót til að geta fylgst með Frímanni, en aðrir feður urðu á undan. Við verðum því að láta okkur nægja að fylgjast með honum og Júlíu á heimasíðu mótsins. Þar koma úrslit inn jafnóðum og þau eru færð inn í mótatölvuna. Þau eru að verða nokkur mótin sem við höfum setið heima og fylgst með tölunum detta inn.
ÁFRAM FRÍMANN!





























