Volgur fimmtudagur en sjóðandi föstudagur

Þetta sumarið hef ég verið ótrúlega duglegur að fara á fimmtudagsdjassinn eða hina heitu fimmtudaga á listasumri hér á Akureyri. Ég byrjaði á að fara með pabba á Sigurð Flosa og félaga sem var hreint ágætt. Síðan fórum við Sverrir Páll og Arnar á tríó Snorra S. þar sem yfirskriftin var Chet Baker. Þetta eru allir miklir tæknimenn á hljóðfærin sín, Gunnar Hrafnsson á bassann og Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Snorri á trompet auðvitað, en mér fannst þeir fara illa með Chet kallinn. Hann svona melódískur og ljúfur en þeir ofur teknískir og spinnegal í spuna sínum. Ég ákvað að sleppa því að fara á blúskvöld með Kristjönu Stefáns en sé aðeins eftir því því foreldrar mínir fóru og komu í skýjunum til baka.

Þessi helgi er Djangohelgi hér á Akureyri. Það var byrjað strax á miðvikudag með tónleikum Hrafnasparks og Mímósu en ég komst ekki á þá en ég ákvað að drífa mig á Robin Nolan í fyrrakvöld á heitum fimmtudegi. Ég var ekkert yfir mig spenntur því maður hefur nú orðið heyrt ansi oft og mikið í honum án þess að mikið breytist í hans tónlist, en ákvað að gefa honum séns því nú eru liðin þrjú ár síðan ég sá hann síðast. Ég hefði betur sleppt því. Þetta voru ekki góðir tónleikar og þótt væntingarnar hafi ekki verið miklar þá stóðust þeir félagar þær alls ekki. Robin var veikur og langt frá því að vera í einhverju stuði, ryþmagítarleikarinn hélt engum takti, ýmist á undan eða á eftir, en bassaleikarinn var allt í lagi sem undirleikari en sólóisti var hann ekki.

Mynd tekin á tónleikum á Græna hattinum 08.08.08

Ég varð sem sagt fyrir miklum vonbrigðum með Robin Nolan og ætlaði varla að nenna út í gærkvöldi en ákvað að drífa mig. Við Arnar tvímenntum niður á Græna hattinn og skemmtum okkur frábærlega. Þessir drengir, Ola Kvernberg (‘81) á fiðlu, Steinar Raknes (‘75) á kontrabassa og Erik Nylander (‘81) á trommur, eru hreinlega frábærir hljóðfæraleikarar. Samspilið var ótrúlega smurt og vel æft og lögin hrein meistaraverk. Þarna er mjög mikið verið að vinna með skandinavíska þjóðlagahefð og hún færð inn í djassinn með þessum líka tilþrifum. Farið endilega inn á vefinn http://www.olakvernberg.com og skoðið ykkur þar um. Neðst á upphafssíðunni er tengill í lög af plötunni Night Driver sem var á efnisskrá tónleikanna í gærkvöldi.

Titillag plötunnar Night Driver með Tríói Ola Kvernbergs (þetta spilast beint af síðu Ola Kvernbergs).

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

No comments yet.

Leave a comment

(required)

(required)