Við héldum…
… að allt væri að fara af stað í gær. Brynhildur fór í mæðraskoðun í gær og þá var hreyft við belgnum og hún Malla, ljósmóðirin, kom meira að segja við kollinn á þessu barni okkar sem við viljum fara að kynnast almennilega. Í framhaldinu fór Brynhildur að finna fyrir örari samdráttarverkjum og kröftugri og svo var komið í gærkvöldi að við vorum mjög farin að búa okkur undir að fara upp á sjúkrahús en svo slaknaði á öllu, við fórum að sofa og vöknuðum upp í morgun og klæddum strákana, gáfum þeim að borða og ýttum þeim út í skóla. – Og nú blasir ósköp venjulegur föstudagur við. Sólin skín, við erum komin með kaffi í bolla, Brynhildur les blöðin og ég býst við að fara að vinna. Dauflegt heldur…
Og þó, sólin skín, Brynhildi líður ekki illa sosum, ágætlega sofin, brún og sæt með leiðréttar augabrúnir og til í allt eða því sem næst.
Við bíðum.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Vonandi verður þetta nú ekki mikið lengri bið hjá ykkur! Hlýtur að fara að koma að þessu
Ég hugsa til ykkar og vona að allt gangi vel – og hlakka til að fá fréttir af barninu sem ég treysti á að þið verðið dugleg að skrifa um á netinu.. hrmm..