Vefnaður er vandi
Það er hreinlega ótrúlegt hvað óheppnin eltir mig. Ég hef tekið að mér ritarastörf fyrir bæði foreldraráð Brekkuskóla og svæðisráð foreldra grunnskólabarna á Akureyri sem við köllum Samtaka. Í dag var fundur hjá Samtaka þar sem ég ætlaði að fara yfir vefinn http://samtaka.org og virkni hans. Ég ætlaði að undirbúa mig kvöldið áður – eins og vant er á síðustu stundu – en þá lá vefhelvítið niðri og ég hafði lítið í höndunum á fundinum.
Núna sit ég heima og er að reyna að undirbúa tíma í fyrramálið í ferðamálafræðinni í MA þar sem við erum að notast við vef sem byggir á wiki-hugmyndafræðinni og er hýstur hjá http://www.wetpaint.com og heitir http://ferma203.wetpaint.com. En viti menn, vefhelvítið liggur niðri. Ekki er hægt að breyta neinum wetpaint vefjum í augnablikinu!! Ótrúlegt helvítis ástand! Á maður að fara að snúa sér að bókunum aftur?
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Comments
No comments yet.
Leave a comment