Strúturinn
Nú nálgast áramótin og undirbúningur fyrir áramótaveislu er hafinn. Hólabrautarsöfnuðurinn allur eða því sem næst verður samankominn í Gilsbakka á Hauganesi og þar verður snæddur humarfylltur skötuselur (fagurfræðinnar vegna er engin mynd af þeim mat) og í aðalrétt strútur (þeir eru of stórir til að hafa á mynd á svona litlum vef).Þetta verður ekki síst kvöld fyrir börnin því þau munu fara með okkur á brennu (vonandi viðrar til þess) og síðan fara þau rúntinn um allt nesið og syngja út nammi í hverju einasta húsi. Síðan sprengja Haugnesingar með okkar aðstoð upp nokkrum milljónum.Þetta verður gaman.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Comments
No comments yet.
Leave a comment