Strákar
Strákarnir hafa ekki fengið verðskuldaða athygli á þessum vef undanfarið. Hvað veldur er erfitt að segja ;o) Frímann klárar skólann núna í vikunni og æfir sund fjórum sinnum í viku, raunar fimm sinnum ef við teljum skólasundið með. Þrisvar í viku er byrjað á klukkutíma þrektíma, ýmist úti eða inni, og síðan er synt í klukkustund, einn og hálfan og jafnvel tvo kílómetra í hvert sinn. Hann er farinn að líkjast Johny Weissmuller í útliti. Brúnn og stæltur. Fyrstu helgina í júní keppir hann á sundmóti á Akranesi. Hugsanlegt að pabbinn fylgi með.
Sá yngri verður eitthvað áfram fram á sumarið í leikskólanum Hólmasól þar sem honum líkar mjög vel. Hann er líka mikill sundgarpur eins og bróðirinn og fer hamförum í Sundlaug Akureyrar þar sem helst tveir fullorðnir verða að hafa gætur á honum. Hann á aðeins við það að stríða á nóttunni að pissa undir. Þetta var um tíma dálítið slæmt, allt renndandi blautt, síðan hætti þetta alveg en nú er þetta byrjað aftur, en sem betur fer bara annað slagið og oftast þannig að það þarf ekki að skipta á öllu. Eina nóttina kom hann fram mjög svefndrukkinn og blautur að framan og sagðist hafa verið með vatn í skeið og verið að reyna að vanda sig að missa ekki neitt úr skeiðinni en það hafði greinilega ekki tekist. Áðan, þegar við vorum að bursta, sagði ég við hann að hann yrði að reyna að fara fram á klósett ef hann þyrfti að pissa. Já, sagði hann, ég má ekki vera með vatn í skeið og missa það hingað, og benti framan á buxurnar sínar. Hann virðist ekki skilja fullkomlega á milli draums og veruleika þarna. Kannski eru þessi skil eitthvað fljótandi á þessum aldri.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Þessir myndarmenn eru glæsilegir og gaman að rekast á þá.