Skrítnir dagar í Hreysinu
Það hefur verið nóg að gera hér í Hreysinu undanfarið. Ég hafði ætlað að njóta nýs upphafs í vinnunni, nánast ekki með neina kennslu og nægur tími til að vinna að ýmsum brýnum verkefnum. Það hefur hins vegar verið þannig að Frímann hefur verið heima núna í átta daga samfleytt, ýmist fárveikur eða bara létt lasinn. Við höfum því skipst á að vera heima yfir honum. Ég hef því ekki náð að koma mér að neinum almennilegum verkum í vinnunni og auk þess hefur verið brjálað að gera við að koma vef Samtaka – svæðisráðs foreldra barna í grunnskólum Akureyrar á koppinn. Nú hefur það tekist með nokkrum sóma bara og hægt að fara að snúa sér að öðrum svona verkefnum: loksins get ég farið að vinna að foreldravef Brekkuskóla og farið að aðstoða Sverri Pál við vef ‘68-stúdenta frá MA.
Það sem heldur mér þó helst niðri um þessar mundir er yfirvofandi próf í Exchange Server 2003. Þetta er þriðja prófið í fjögurra prófa törn á leið til þess að fá MCSA-skírteini (Microsoft Certified Systems Administrator). Ég efast all oft um það hvað í helv… ég er að gera í þessu, en ég á alveg að geta klárað þessi próf. Jafnvel þótt mjög vanti upp á dýpri skilning og reynslu á þessu sviði. Prófið er sem sagt þann 15. febrúar og þegar það er búið ætla ég að opna einhvern sérstaklega góðan belgískan eða þýskan.
Stundum er kannski heldur mikið að gera.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Já það er svona að geta aldrei sagt nei við neinu heehe. Það er gott að Frímann er búinn að ná sér. En hvaða réttindi færð þú með þessu YMCA skírteini?
ein ekki alveg að ná þessu tölvu kja….!!!