Sálmasull
Eins og einhverjir kannast við þá syng ég í kirkjukór. Stundum þarf maður að reyna að æfa sig heima, sérstaklega núna þegar ég er eitthvað að rembast við að syngja bassa eftir að hafa verið árum saman í tenór. Þá getur maður farið inn á rafsálma kirkjunetsins og sótt sér midi-skrár. Á meðan ég var PC-notandi gat ég sett upp forritið NoteWorthy sem setti upp raddirnar sér fyrir mann þannig að auðvelt var að einangra sína rödd og spila hana sér. Nú er ég kominn yfir á makkann og óttaðist því að ég gæti ekkert gert almennilegt við þessar midi-skrár. En öðru nær. Í öllum mökkum nú til dags fylgir forritapakki sem kallast iLife. Í honum er forritið GarageBand sem er alveg grámagnað og stórskemmtilegt. Ég prófaði að hlaða inn sálmi 56, Son Guðs ertu með sanni (sjá midi-skrá) og Sjá! ég gat leikið mér með hinar mismunandi raddir að vild og meira að segja bætt hinu og þessu við.
Ég vil endilega deila afrakstrinum með ykkur, vinir kærir. Hér er sálmur nr. 56 eftir að hafa komið við í GarageBand hjá mér.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Rafsálmar kirkjunetsins eru eitthvað sem heillar mig ekki upp úr skónum
Og hér hef ég þó sagt eitthvað