Pabbi á afmæli í dag
Karl faðir minn fimmtíu og sex ára í dag og af því tilefni sendi ég honum afmæliskort (það má sjá í allri sinni dýrðarinnar mynd ef smellt er á myndina hér fyrir neðan). Það var ákaflega kallað eftir því að ég orti honum eitthvað þannig að ég varð að gera tilraun til þess. Úr urðu erindi lítil tvö. Í bæði skiptin ætlaði ég mér að yrkja eitthvað fagurt og upphafið um föður minn há(lf)aldraðan en einhvern veginn rann ég alltaf úr þessum hæðum og niður fyrir beltisstað, bæði að framan og aftan. Vísurnar fylgja hér en eru í aðeins fallegra umhverfi í afmæliskortinu sjálfu sem birtist fullum fetum í pdf-formi ef smellt er á myndina).
Í Þóranum býr þrútinn gaur
þrítugur tvisvar eða þar um bil.
Í Jarlstaðnum er hann með særðan staur
sem staulast vill um gróin gil.
Faðir minn var ósáttur við orðið “særðan” og telur það brjóta bragreglur (sem það auðvitað gerir). Honum fannst þarna verða að standa “stærðar” (!) En höfundur er þver og vill standa við sitt.
Hjá Þórunni Hyrnu býr firna fýr
í fyrndinni fagur að líta.
Nú æskuna lengi sem óðast flýr
og unir sér best við að skíta.
Ég óska föður mínum til hamingju með daginn.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Comments
No comments yet.
Leave a comment