Nýjar myndir
Nú er komið inn eitt nýtt albúm á vefinn. Það er sosum ekki mikið en samt eitthvað aðeins. Það hefur einfaldlega verið svo mikið um að vera hér að það hefur ekki gefist tími til neins annars en að skipuleggja, fylgjast með… – já og taka einhverjar myndir sem hér birtast hægt og rólega.
Annars leiðist mér þessi myndaumsýsla orðið mjög mikið (Gallery2 plugin fyrir WordPress) og ég er farinn að skoða aðra möguleika. Apple hefur lagað mjög mikið til á því sem kallaðist .Mac og hefur breytt því í me.com. Þar á ég einn reikning sem ég hef aðeins verið að prófa og eru myndagalleríin þar mjög skemmtileg; ekki síst fyrir það hvað er einfalt að flytja þau út á serverinn. Skoðið endilega http://gallery.me.com/ghauksson og segið okkur hvort við ættum ekki bara að henda myndunum okkar þarna inn.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Sæll.
Þetta me.com er býsna lipurt en mér finnst það breyta litum ansi mikið. Skoðaði Hugsmiðjupakkann frá mér og hér líta myndirnar allmikið öðruvísi út, einhvers konar blá-rautt sem eykst í þeim þannig að til dæmis græna veggfóðrið í leðrinu verður næstum hvítt o.s.frv.