Nei, ertu orðin svona?

Við stóðum úti á plani áðan og vorum að spúla sandi og rusli út á götu. Kemur þá ekki nágranninn á móti, sem við spjöllum oft við, sér Brynhildi með stóra kúlu og segir „Nei, ertu orðin svona myndarleg?“ Brynhildur svarar að bragði „Já, já, og er skrifuð inn í dag.“ Þetta kom gamla manninum algerlega í opna skjöldu því hann haðfði ekki tekið eftir að Brynhildur var ólétt. – Þetta var sem sagt stutt meðganga í hans augum. Lengri í okkar. Mun lengri. Og lengist enn. Við bíðum og bíðum.

Á fimmtudag sendi ég út bréf til allra í MA þar sem ég eiginlega stimplaði mig út og inn í fæðingarorlof. Ég var svo heima á föstudaginn því ég var handviss um að Brynhildur færi af stað þá og þegar. Helgin leið og morguninn rann upp einhvern tíma í morgun eftir vita svefnlausa nótt og ég varð að gjöra svo vel og drífa mig í vinnuna. Mig langaði helst að hafa á mér hettu og sólgleraugu og fara helst ekki út af skrifstofunni minni en það gekk því miður ekki upp. Í hverju horni, á hverri leið milli A og B var einhver sem hafði skoðun á því að ég ætti nú eiginlega ekki neitt erindi þarna í MA, ég ætti að vera allt annars staðar. Það var hálf erfitt að setja upp einhverja kankvísa brosgrímu og grínast með málið: „Já, þetta er ljótt. Við erum farin að reka á eftir greyinu áður en það fæðist, hehe.“

Jón Már skólameistari á afmæli í dag og var fyrir löngu búinn að óska sér þessa afmælisgjöf. Ég og við bæði töldum það útilokað að krílið myndi hanga þarna inni svo lengi. Nú er ekki mikið eftir af þessum degi þannig að það þarf að verða mikil sprenging ef það á að ganga upp. Annars er morgundagurinn fínn líka. Ekki minni menn en Immanuel Kant, Lenín, Snorri Hjartarson, Jack Nicholson (og bassaleikarinn í System of a Down!) eiga afmæli á morgun. Ef ekki á morgun þá hinn. Þá er Halldór Laxness. Hann er fínn. Ef ekki hinn þá alls ekki daginn eftir hann. Þá á enginn almennilegur afmæli. Björn Malmquist fréttamaður er sá sem stendur upp úr þeim lista. Nei takk! Reyndar er sumardagurinn fyrsti þá, en það er allt of langt í þetta. Og ekki kemur til greina að eiga barnið á föstudag þótt tengdamamma eigi afmæli þá. Það er of langt í það!

En æ, maður reynir að líta upp í biðinni. Þá er stundum hægt að gleyma sér við að skoða iPhone á netinu. Flottur :o )

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

No comments yet.

Leave a comment

(required)

(required)