Mörgu frá að segja

Snúlla GuðjónsdóttirJá, úff hvað ég hef frá mörgu að segja og úff hvað ég verð að bíða með að segja frá svona mörgu. Ég er einn heima með strákunum. Stelpurnar eru uppi á sjúkrahúsi í góðu yfirlæti. Já þetta var stelpa, lítil yndisleg snúlla, lilla, stubbulína. Ótrúlega lík Ými, finnst okkur, enda stutt síðan við eignuðumst hann, en þegar við skoðum betur myndir af Frímanni nýfæddum sjáum við að þetta er allt saman steypt í sama formið. En fleira síðar. Ég er búinn á því og verð að fara að sofa :o )

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

ahhhhhh hún er yndisleg! Hlakka svo til að halda á henni :) Sjáumst í kvöld eða á morgun jeiiiiiii !!!

Hún er svo kær, en hvað heitir hún?
Ég hlakka till að halda á henni i júlí.
Sjáumst og hamingjuóskir með litlu stelpuna!

Heitir hún Snúlla?

Hún hefur enn ekki fengið nafn. Við höfum fengið margar tillögur frá vinum og kunningjum en köllum hana ýmsum gælunöfnum þar til annað kemur í ljós, Snúlla, Dúlla, Stubbulína, Kerlingin, Systa og fleira sem til fellur :o )

Það verður ekki leiðinlegt að fá Hilde í heimsókn, sem næstum því fékk dúlluna í afmælisgjöf.

Leave a comment

(required)

(required)