Mánuður liðinn
Já það hefur verið margt að gerast hér í hreysinu undanfarið, þótt Hreysið (vefurinn) beri þess engin merki. Síðasta færsla frá mér er frá 7. maí og nýjustu myndirnar sýnast mér vera frá fjórða maí. Þetta er engin frammistaða hjá atvinnumanni í upplýsingatækni. Ein ástæða þess að ég hef staðið mig svona illa er sú að ég hef verið á haus við að reyna að endurreisa vef MA eftir hryðjuverk sem unnin voru á honum í síðustu viku. Allur minn tími sem hægt var að losa um hefur farið í þetta verkefni. En nú er hann semsagt kominn upp loksins, eilítið laskaður, en gerir sitt gagn nokkurn veginn. Aðeins herslumunurinn eftir í vinnu við tilkynningakerfið
Lífið gengur annars bara bærilega hérna. Stúlkan okkar er orðin eins mánaðar gömul og dafnar ágætlega þótt henni gangi ekki allt of vel að halda mjólkinni niðri sem hún drekkur. Eiginlega ætti ég auðvitað að tileinka henni alla þessa færslu, en ég byrjaði bara á henni í fyrradag og nennti ekki að fara að endurskrifa allt saman. Í staðinn erum við búin að setja inn allmargar myndir frá síðustu vikum. Rækilega kominn tími til. Ó, já, það er nýtt myndband hér uppi til hægri. Skoðið það endilega.
Önnur ástæða þess hvað ég hef lítið ástundað Hreysið er að nú er ég hreykinn eigandi iPhone. Það er dálítið erfitt að tala um hann sem nýja “gemsann” minn því þetta er allt annað og meira. Tölvupóstur, vefskoðari, dagatal, myndavél, myndagallerí og tónlistarhlaða = fartölva. Kannski er þetta í raun fyrsta “fartölvan” mín? Ég nýt þess mjög núna á morgnana þegar ég hef farið með Ými í leikskólann að fá mér ágætan göngutúr og hlusta á Dracula á podcasti eða í hlaðvarpi eins og íslenskumenn vilja kalla þetta. En ég náði mér í hljóðbokina af vefnum www.librivox.org sem er með ógrynnin öll af lesnu efni. Svo er ég með bókina á náttborðinu og skiptist þannig á að lesa og hlusta. Mjög gott.
Hvernig stóð á því að Malta komst ekki áfram? Ekki svo að skilja að þetta sé uppáhaldið mitt en þetta er verulega fjörugt og dansvænt lag. En ég hlakka til á morgun (ja, seinna í dag er það víst) að sjá Eurovision-úrslitin með Íslendingana innanborðs. Mér finnst þau standa sig mjög vel.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Já Vagínan og Omminn standa sig mig prýði, það verður ekki af þeim tekið og það verður gaman að horfa í kvöld þegar Ísland fær loks að vera með í úrslitunum
Yndislegar myndir. Væri alveg til í að koma í heimsókn og knúsa snúlluna einu sinni enn fyrir brottför en það verður gaman að sjá hana og ykkur öll aftur í haust.
Kveðja,
Sigga