Kringlukast
Við eyddum deginum í Kringlunni í algeru kasti. Keyptum fullt af óléttufötum á Brynhildi. Loksins getur hún farið í einhverju öðru út en náttbuxunum ;o) Helena eða Ragna eða bæði hjálpaði henni duglega og án hennar hefði þetta ekki verið mögulegt.
Það er undarlegt að þegar maður er óléttur sér maður óléttar konur útumallt. Í kringlunni var dagur hinna óléttu kvenna í dag. Hvert sem maður leit voru bumbur.
Í kvöld erum við svo á leið í útskriftarpartý hjá Höllu Himintungli.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Sæl verið þið.
.
Þetta er nú bara í fyrsta sinn sem ég kem hér inn
Til hamingju með óléttuna
Sjáumst vonandi um jólin.
Bestu kveðjur frá Hollandinu.
Dagný og co