Kraftaverk í Brekkuskóla
Við feðgar vorum að koma af söngleiknum Kraftaverk í Betlehemstræti sem krakkar í Brekkuskóla eiga heiðurinn af ásamt Arnóri Vilbergssyni og Guðjóni Davíð Karlssyni. Þetta var mjög skemmtilegt auðvitað en það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þetta að hér sjáum við hreinræktaðan helgileik í takt við það sem maður átti kannski frekar að venjast í skólum hér áður fyrr. Manni finnst þetta næstum því hugað af Brekkuskóla að vera með trúarlegt, kristilegt leikrit á þessum tímum þegar það er næstum því glæpsamlegt að tala um Guð (svo vitnað sé óbeint í Bertold Brecht – 50 kr fyrir þann sem fattar tenginguna).Mér fannst gott að fara með syni mína á helgileik í skólanum þeirra. Mjög gott. Jólalegt, notalegt, fjölskylduvænt, siðmenntandi meira að segja.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Comments
No comments yet.
Leave a comment