Íþróttamaður niður í tær
Já, ég held að allir geti verið sammála um að ég sé frábær íþróttamaður og það alveg fram í fingurgóma og niður í tær. Ég spila varla svo körfubolta að ég ekki brjóti á mér fingur og í dag sló ég öll met. Ég synti fjögur hundruð metra og braut á mér tá! Lafmóður skreið ég upp á bakkann eins og fyrsta lífveran sem komst á þurrt en skrikaði fótur frammi fyrir hálfsoðnum áhorfendaskara í pottinum og kramdi undir mér tá. Á sama augnabliki steig glansandi kroppur einhvers valmennis upp úr sundlauginni við hliðina á mér (sjálfsagt búinn að synda fjóra kílómetra á 20 mínútum), leit niður á mig og sagði eitthvað gáfulegt örugglega (mér heyrðist það samt vera bara „Góðan dag!“ en það getur varla verið). Ég gerði krampakenndar tilraunir til þess að standa virðulega á fótunum, en þær lýstu sér þannig að ég valhoppaði einhvern veginn um leið og ég reyndi að ná vatni úr eyranu á mér með því að hrista hausinn sem ákaflegast. Mikið er ég glaður að ég þekkti fáa í lauginni í dag.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.
Comments
ahahahahahahahahaha! virkilega fannst mér fyndið að lesa þetta, leitt með tásuna þó. Gangi þér vel í íþróttunum
Knús,
Siggí
Jamm, táin hangir enn. Fjólublá og fín. Ég er hörkutól og fór aftur að synda í dag. Í þetta sinn með froskalappir og þegar ég kom upp úr skreið ég á fjórum fótum varlega þessa þrjá metra yfir í heita pottinn og renndi mér varlega á maganum ofan í heitt vatnið. Þar lá ég þar til sviminn eftir átökin var liðinn hjá. Þá kallaði ég í sundlaugarvörð og fékk hann að styðja mig yfir í karlaklefann og þvo mér…
Vond meiðslli. Ég tognaði líka einu sinni en þá var ég að reyna að lúskra á nemanda sem hafði álpast í FIMMA.
Fyrir fullkomna sýn mundi mig bara vanta tígrísdýrasundskýluna frá Münster. Haltrandi Tarzan með heilahristing – hmm dágóð fyrirmynd, ef ekki ný superhero.
Heyrðu heyrðu.. er ekki kominn tími á nýtt blogg?!
Eitthvað verðum við lata námsfólkið að geta skoðað á netinu okkur til dægrastyttingar!!




Wat zeg je? Heb je je teen gebroken in het zwembad?
þú ert virkilega frábær iþróttamaður