Hvar ertu nú?
Já, Arnar, hvar ertu nú? Nú situr maður einn og verður sér til skammar fyrir framan sjónvarpið. Þjóðverjar leika á morgun við Tyrki og ég er strax farinn að kvíða fyrir. Nú væri gott að eiga félaga góðan til að henda sér með fyrir framan kassann og geta einbeitt sér að því að koma í hann bjór meðan horft væri á leikinn. En minn maður er í Madrid að safna brúnku. Skilur mig eftir í skötulíki, hvítan og kæstan.
En lífið heldur víst áfram. Frímann er að sjálfsögðu kominn í sitt sumarfrí og nýtur sín í hástert. Hann hefur fengið dellu fyrir gömlum hjólum – varð fyrir smiti frá Svani Berg frænda sínum – og finnst mun skemmtilegra að hjóla á of litlum og nánast ónýtum hjólum heldur en fína gírahjólinu sínu sem hann fékk í afmælisgjöf þegar hann varð átta ára. Eins er hann farinn að ferðast á milli parka (eins og hann kallar hjólabrettaleikvellina) í bænum á öllum hugsanlegum fararskjótum: hjólum, hjólabrettum, hlaupahjólum og jafnvel línuskautum. Þetta er að verða þvílíkur unglingur sem við eigum! Hann er núna í vinnu hjá foreldrum mínum við að sortéra tveggja ára birgðir af gleri og dósum sem hafa safnast upp í bílskúrnum. Hann á nefnilega að fá peninginn fyrir þetta en verður að vinna fyir þeim auðvitað. Það var dásamlegt að fylgjast með því hvað honum fannst þetta mikill óþarfi í upphafi. Hann skildi engan veginn að afi hans og amma létu hann ekki bara fá peninginn og flokkuðu ruslið sjálf. „Þau láta mig gera þetta einan!“, sagði hann okkur um daginn, ótrúlega hneykslaður.
Við Ýmir erum enn í vinnu. Hann í leikskólanum og ég í MA. Hann spyr mjög reglulega hvort hann eigi ekki að fara að fá sumarfrí eins og stóri brói. Finnst það frekar fúlt að fara út með mér meðan allir aðrir sofa á sínu græna. Hins vegar er það svo, þegar hann er heima, að hann spyr út í eitt: „Má ég fara til Ágústar? Má ég heimsækja Benna? En Hannes?“ þannig að það er kannski eins gott að senda hann í nokkra tíma á leikskólann. En hann fær sitt frí um leið og ég.
Af störfum mínum er það að segja að ég geng líklegast frá því í vikunni að vefur MA verði endurnýjaður og um leið verði tekið upp innra net sem mun koma í staðinn fyrir samskrána og skjalasafn skólans. Þetta verður mikill munur og mun vonandi verða til þess að virkja kennara betur og auðvelda samstarf um ýmis gögn. Enn þá er samt eftir að raða fartölvum á nýja og eldri kennara, skipuleggja betur sumarverkefni EJS á staðnum og jafnvel algera endurnýjun á prentmálum í skólanum. Gott ef það gengi upp. Aðalmálið er að ganga á næstu dögum þannig frá hnútum að ég geti verið í sumarfríi að fullu þangað til í lok ágúst. Þá verður mikið um að vera. Alger kúvending á UTN, sem ég hef kennt í nærri tíu ár – já, ég var að ljúka mínu tíunda starfsári í MA! -, sem verður spennandi að sjá hvernig gengur upp. Og margt fleira. Ég hlakka mjög til næstu ára í MA; held að nú sé að sverfa til stáls í miklum breytingum í skipulagi skólans.
En Arnar, ertu ekki að koma?
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




“En hvar ertu nú? Ertu að leita mér?
(Hvar er skipstjórinn)…
Heyrðu, gamli, það styttist en þó er rúmur mánuður í oss,
20.júlí – 26. júlí Rvk, vinnustúss og fl. hjá Hönnu og síðan norður.
Þú hefur mánuð til að koma þér í form, því við ætlum í fótbolta. Horfðu á Rocky 1 og kauptu þér svo læri og lemdu það. Eins geturðu lamið eigin læri en það gæti verð sárt.
bestu kv
arnar