Heil nótt
Já, þetta var fín nótt. Það var sofið í alla nótt. Dúllan okkar sofnaði fyrir miðnættið í vöggunni sinni og vaknaði ekki fyrr en klukkan hálf sjö. Allir útsofnir bara. En maður fann samt að það var komin ansi mikil þörf á þessu. Flestar nætur hingað til hafa verið mjög brotakenndar eins og eðlilegt er.
Þegar við Frímann vorum komnir fram og Frímann að borða morgunmatinn kom Ýmir frekar hnípinn fram úr sínu herbergi og var pínu blautur um frammiðjuna. Hann sagðist hafa verið að reyna að halda á skeið með vatni í en misst úr henni óvart
)
Við fórum í heimsókn í Sunnuhlíð í gær til langömmu og langafa til að sýna þeim stúlkuna okkar í fyrsta sinn en gleymdum því miður að hafa með okkur myndavél. Heimsóknin er þannig alveg ódokumenteruð. Við sýndum þeim aðeins á DVD-spilarann sem við barnabörnin gáfum ömmu í áttræðisafmælisgjöf um daginn og sýndum þeim síðan auðvitað á myndaalbúmin hérna á hreysinu. Þau eru orðin svo tæknivædd að það er engu líkt, áttrætt fólkið.
En nú er Eurovision 2008 farið að heltaka land og lýð. Frímann horfir á sænska lagið öllum stundum en ég er enn í sárum yfir því að þessu frábæra rússneska framlagi var hafnað þar í landi:
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




oj ojojojojoj þú og þinn júrósmekkur keeeeellllllliinnnnn minn þú þarft að horfa á lagið frá arjerbaitjan það eru sko söngvarar hehe.