Gjáarmelur

Um þessar mundir er verið að undirbúa mikla hátíð hjá átthagafélaginu Gjáarmel. Að Gjáarmel standa systkinin frá Dal, sem sagt faðir minn og systkin hans ásamt öllum afkomendum að sjálfsögðu. Eftirfarandi mynd er tekin af Gjáarmelnum sjálfum og sést yfir ættaróðalið Dal og nokkur ættmenni með viðhengjum geysast upp á melinn.
Geyst upp Gjáarmelinn

Í þetta sinn hittist ættin til að minnast ömmu Hólmfríðar sem dó tveimur dögum áður en þessi mynd er tekin, þann 22. júlí 2004. En nú er tilefnið annað: Ingólfur afi fæddist nefnilega þann 25. september árið 1908, þ.e. fyrir hart nær 100 árum.

Ættin öll hefur nú tekið höndum saman og undirbýr stórafmælið í netheimum með aðstoð Google. Google Groups sjá um samskiptin og Google Sites eru notaðar til að setja upp niðjatal. Það er ótrúlega gaman að taka þátt í þessu og maður sér óneitanlega fullt af möguleikum tengda kennslunni sem gaman væri að prófa. Þess má geta að það var séra Kristján Valur, eða Danni, sem kom þessari netvæðingu ættarinnar af stað.

Þessi tilvera ættarinnar í netheimum minnir mig að mörgu leyti á þetta myndband hér sem ég sá fyrst árið 2005. Þarna er maður að nafni Robert Sloan að velta fyrir sér hvernig Google getur hugsanlega hafa haft áhrif á líf okkar árið 2015. Skoðið þetta endilega. Athugið að myndbandið er dálítið langt (10 mín. jafnvel).

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Glæsilegt Guðjón! Þú fyllir mig stolti og áhuga á að standa mig betur :) Kveðja Linda

Leave a comment

(required)

(required)