Frímann sundgarpur

YouTube Preview Image

Frímann Benedikt hefur æft sund frá því hann var fjögurra eða fimm ára. Hann byrjaði reyndar í ungbarnasundi, síðan krakkasundi, þar á eftir sundskóla Óðins, skjaldbökunum (þar er Ýmir núna), og síðan í hverjum hópnum á fætur öðrum: sæhestum, höfrungum, framtíðarhópi og nú er hann að æfa með úrvalshópi, sem er unglinga- og afreksþjálfun, en yngri krakkar hafa verið dregnir upp í efri hópa undanfarið. Kannski er það aðallega til að gefa aukið rými fyrir fleiri yngri börn í yngri hópunum því sífellt eykst eftirspurnin eftir þjálfun hjá Óðni.

Frímann er núna að æfa fimm sinnum í viku í einn og hálfan tíma í senn og fer auk þess tvisvar í viku í klukkustundar langan þrektíma á undan sundæfingu. Þetta er óneitanlega mjög mikið, en gæti verið enn meira. Við ákváðum að láta á það reyna hvort Frímann vildi halda þessu svona eða fara til baka í framtíðarhópinn en fram til þessa líkar honum þetta vel. Auðvitað er þetta erfitt stundum en lang oftast er þetta mjög skemmtilegt. Sundkrakkarnir eru upp til hópa mjög samrýmdir og skemmtilegir og góðir vinir.

Nú er það líka svo að Frímann stækkar hratt og styrkist allur. Þá er gaman að fylgjast með tímunum og sjá hvernig hann bætir sig í hverri grein. Nú er svo komið, eftir Lionsmót Ránar sem haldið var á Dalvík um síðustu helgi, að það styttist í lágmörk sem sett eru fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands (AMÍ). Þetta mót verður haldið á Akureyri í lok júní en í byrjun júní verður annað mót á Akranesi. Þar gefst gott færi á að ná góðum tímum og komast inn á AMÍ. Það væri ekki lítið gaman fyrir Frímann að keppa við hlið frænku sinnar, Júlíu Ýrar 14 ára, sem er að gera það mjög gott núna og er meira að segja farin að keppa á íslandsmeistaramótum.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

OHHH ég er að rifna úr stolti :O)

Ohhhhh ég líka!! Skrifaði komment hér um daginn og kom svo aftur að skoða en hér er það ekki. Allavega þá er ég og við svooo stolt af honum Frímanni og Júlíu og vídjóið er alveg æðislegt. Ástarkveðja, Sigga, Hallur og Snæfríður Hekla Svarfdal sem fer kannski bara líka að æfa sund ;)

Heyrðu Frímann. Þetta er æðislegt. Ég vissi ekki að þú værir orðinn svona góður. Til hamingju með það.

Ég lýsi yfir gríðarlegri ánægju með Frímann frænda og Júlíu frænku…mitt spávísa nef segir mér að þau eigi eftir að skarta fleiri verðlaunapeningum í framtíðinni og unglingalandsliðið bíður þeirra með óþreyju. Ég óska ykkur áframhaldandi dugnaðar, krafts, þor, keppnisskaps og lífsgleði
og haldið áfram að synda ykkur til ánægju og Sigurs kv. Halla frænka í trópískum ævintýrum Asíu

Leave a comment

(required)

(required)