Frímann sundgarpur
Frímann kemur heim í dag, loksins. Eða í kvöld. Hann lagði upp í ferð með sundfélaginu Óðni á föstudagsmorgunn til Akraness þar sem hann hefur verið að keppa í sundi síðustu þrjá daga. Eitt sund á föstudag strax, tvö á laugardag og eitt í morgun. Eftirfarandi mynd er tekin á mótinu og birtist á vef ÍA í gær.

Þarna er karlinn að synda 100 m bringusund í flokki 12 ára og yngri. Hann bætti sig um tæpar 15 sekúndur varð í sjötta sæti og annar af Óðinsmönnum. Við höfum fylgst með í fjarlægð af vef ÍA og skráð hjá okkur úrslitin um leið og þau hafa birst á vefnum. Við báðum hann um að hringja í okkur á kvöldin en við höfum ekki heyrt bofs frá honum. Það er greinilega mjög gaman.
Ég var að setja inn nokkrar myndir af kappanum þar sem hann keppir í sundi og leikur sér á bretti.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Flottir sundgarpar sem þið eigið
Innilega til hamingju með 4 ára töffarann ykkar.
Bestu kveðjur úr bongoblíðunni í hollandinu.
Dagný og co.