Frímann Benedikt – fyrsta stórafmælið

Já, það hefur verið skammt milli stórviðburða þetta árið. Fæðing dóttur, áttræðisafmæli ömmu í Sunnuhlíð, skírn Emilíu Ingibjargar, afmæli Ýmis Hauks, fertugsafmæli Svans, þrítugsafmæli Steinlaugar systur, lát ömmu í Sunnuhlíð – sem var jörðuð í gær – og nú tíu ára afmæli Frímanns Benedikts í dag.

Frímann er nú byrjaður í fimmta bekk Brekkuskóla og plumar sig vel (1x). Er búinn að fá nýjan kennara, hana Auði, sem honum líkar mjög vel (2x) við. Svo er hann aftur byrjaður á sundæfingum í framtíðarhópi Óðins og líkar það einnig mjög vel (3x).  Semsagt vel³.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Til hamingju með strákinn ykkar yndislega. Man það eins og það hefði gerst í gær þegar hann fæddist blessaður drengurinn ;)
Til hamingjum með þennan stórmerkilega 10 ára afmælisdag elsku Frímann!

Kossar og knús frá okkur á Laugaveginum,
Sigga, Hallur og Snæfríður Hekla

Innilega til hamingju með stóra strákinn ykkar.
ótrúlega kúl mynd af þeim bræðrum :)

Var hægt að klappa þeim (þ.e.a.s hvölunum)?
hihi
:)

Takk fyrir það bæði Dagný og Sigga. Ég verð að taka það fram að þessi mynd er nett fölsuð. En við sáum þær samt í nokkru návígi, þó eitthvað rúmlega steinsnar því strákarnir köstuðu grjóti í áttina að þeim sem óðir væru. Fólk var farið að æpa á þá að vera ekki að fæla greyin í burtu.

Til hamingju frímann í gær betra seint en aldrei ;) fín mynd af ykkur bræðrum , kærar kveðjur frá völlu og niels í ´köben

Takk fyrir það Vala. Frimann er alsæll eftir þessa daga. Búinn að fara í keilu með fjölskyldunni í gær og halda fína afmlisveislu fyrir stórfjölskylduna í dag.

já mér fannst þessi mynd vera eitthvað spúkí….. Annars gleymdir þú að telja upp sextugsafmæli tengdaföður þíns í þessari runu. Það var annars leiðinlegt að missa af þér þegar þú komst í heimsókn hingað. Vonandi sjáumst við fljótt. Knús til allra!

Til hamingju með afmlið þitt Frímann
Tvi miður kemur kortið of seint
(af því að það er langur vegur frá Belgíu til Íslands ;-)

Þakka þér Hilde fyrir kveðjuna og takk fyrir bréfið og myndirnar sem þú sendir okkur eftir að þið komuð heim eftir ferðalagið! Það var frábært að geta tekið á móti ykkur hér og fara í þessar ferðir með ykkur. Einhvern tíma setjum við myndir af þessu á netið.

Það er ljótt að hafa gleymt afmæli Frímanns seniors í upptalningunni. Afsakið það allir hlutaðeigandi!

Leave a comment

(required)

(required)