Fiskbollurnar sviku
Við Brynhildur fengum þá fínu hugmynd að gefa nú gaurunum okkar eina klassíska fljótlega máltíð í gær og gerðum fiskibollur í karrýsósu með kartöflum. Við létum auðvitað fylgja með sögunni að við hefðum alltaf dýrkað þetta í gamla daga. Uppáhaldsmaturinn okkar beggja í þá daga (reyndar oftast þá með örlitlu dassi af tómatsósu þannig að sósan var fagurbleik).
Það tók nánast klukkutíma að koma gumsinu ofan í Ými og Frímann var horfinn frá borðinu þegar við litum undan eitt augnablik.
Já, það er af sem áður var.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




greinilega smekkmaður hann Frímann, hvað voruð þið að hugsa?