Emilía Ingibjörg tveggja mánaða gömul

Já, dúllan okkar hún Emilía Ingibjörg (maður er enn að æfa sig að skrifa þetta) er orðin tveggja mánaða. Hún dafnar ágætlega þótt ekki þyngist hún hratt. Hún hefur ælt mjög miklu undanfarið og nokkuð ljóst núna að það hefur ekkert með mjólkuróþol að gera. Hún ælir jafnmikið þótt Brynhildur hafi klippt algerlega á alla mjólkurvörur í um tvær vikur. Þetta rjátlast vonandi bara af henni eins og það gerði hjá bræðrum hennar.

Hér er kalt í veðri og stöðugur norðankalsi. Þá er annað að lesa vefinn hjá Arnari og hyskinu hans í Madrid. Þar er hitinn kominn í 35 gráður og mun hanga þar fram á haustið. Spurning hvort er betra. Hér verður manni næstum því hlýtt ef maður gengur rösklega eða hleypur undan vindi í mikilli sól. En það sama á móti vindi veit aðeins á nefrennsli og hálsbólgu.

Ég ætlaði að segja svo miklu meira við þetta tækifæri, en ég er að sofna ofan í lyklaborðið. Ég vil síður vera með „ASDF“ prentað aftur á bak á nef og kinnar í fyrramálið – ég er ekki kominn í sumarfrí – þannig að ég hætti núna.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Halló! Ég er ekki frá því að það sé kominn svolítill dalsarasvipur á hana. Alveg ótrúlega fallegur auðvitað.

ji hvað hún er sæt. Hún líkist Brynhildi meira, er það ekki? Algjört gull :)

Jú, það er ljóta vesenið. Ég virðist ekki eiga neitt í nokkru barna minna. Kannski er það eins gott því þau eru öll svo stórkostlega sæt og falleg…

Leave a comment

(required)

(required)