Emilía Ingibjörg orðin eins árs

Emilía Ingibjörg eins árs gömul
Emilía Ingibjörg er orðiin eins ár í dag, sumardaginn fyrsta. Það er alveg ótrúlegt, þótt hún hafi reyndar verið 11 mánaða ótrúlega lengi.
Píslin er aðeins farin að dafna aftur eftir smávegis bakslag reyndar í nokkra daga um daginn þegar það leit út fyrir að hún ætlaði að hefja ælutímabil mikið enn og aftur. En það sem sagt lagaðist og hún er farin að borða ágætlega aftur og örlítið farin að þrekna og eflast.
Við óskum ykkur öllum, kæru vinir, gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn. Nú eru aðeins nokkrir dagar í að Brynhildur hefji aftur störf í MA eftir langt fæðingarorlof. Þá skiptum við og ég fer í tveggja mánaða orlof. Ég lít svo inn í júlíbyrjun í einhverja örfáa daga og fer svo í sumarfrí
Gleðilegt sumar
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Gelukkige verjaardag Emilia!
Prettige eerste werkdag, Brynhildur.
Veel plezier tijdens je papavakantie, Gudjon!
Bedankt voor de zomerwensen, maar bij ons is het nog lente.