Dúllan okkar er vikugömul
Í dag hélt dóttir okkar og systir upp á vikuafmæli sitt. Hún var að sjálfsögðu klædd í kjól og tilheyrandi og borin í kóngastól út um allt. Hún fékk sérstaklega valda mjólk að drekka og sérvalda vöggu að sofa í. Hún fékk svo meira að segja að fara í sína fyrstu sturtu og fannst það greinilega mjög þægilegt.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.





Sæl öll sömul og innilega til hamingju með litlu dömuna. Yndislegt að þið fenguð stelpu, það er svo gaman að eiga bæði. Hún er voða falleg en ekki sé ég hverjum hún er lík, er glötuð í því. Vona að þið hafið það gott öllsömul og að vel gangi með brjóstagjöf og annað slíkt sem tilheyrir svona krílum.
Bestu kveðjur,
Ingibjörg og fjölskylda