Do, re, mi…
Við Ýmir erum enn þá veikir heima síðan á sunnudag. Áðan söng Ýmir fyrir mig Doremíið eins og þau eru að læra það í leikskólanum. Þegar hann var búinn að syngja þetta varð ég að prófa Youtube og sýna honum aðeins úr Sound of Music.
Honum fannst þetta að sjálfsögðu frábært og sagði. “Þau eru svei mér dugleg að syngja doremí”. En þarna rakst ég á annað vídeó, hefði sjálfsagt ekkert rambað á það nema fyrir það að það tengist Belgíu, og finnst það ekki síðra en hitt. Mjög góð hugmynd.
Það er dásamlegt að fylgjast með fólkinu á sínu hversdagsrölti detta allt í einu inn í dans- og söngvamynd á miðjum degi, og það aukinheldur dans- og söngvamyndina.
Við þetta tækifæri verð ég að setja hér inn tengil á enn annað hópatriði sem mér finnst alveg frábært. Um er að ræða félaga okkar í Saint-Lodewijkscollege í Brugge í Belgíu sem héldu svona stórglæsilega upp á 175 ára afmæli skólans.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.




Comments
No comments yet.
Leave a comment