Búinn!
Dásamleg tilfinning! Eins og að hafa klárað samræmdu prófin upp á nýtt. Síðustu fjórar vikur hafa farið samfellt í vinnu og lestur og tvö síðari prófin í MCSA. Ég svona rétt druslaðist gegnum það fyrra (Exchange Server 2003) með 760 punkta (lágmark er 700 af 1000) en tók það seinna (sem heitir því skemmtilega nafni “Implementing, Managing, and Maintaining a Microsoft Windows Server 2003 Network Infrastructure, Second Edition”) með glæsibrag, 820 punktum. Þetta tók tvö ár, en er nú loksins búið. Ég á von á því að fá pakka frá Microsoft. Hvað ætli það verði? Bolur með mynd af Bill?
Hvað næst? Apple Certified Systems Administrator? Er maður ekki að verða nokkuð fjölhæfur þá?
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.
Comments
hvaða sperringur er þetta? Er ekki ljóst að tölvur eru bara bóla sem mun springa. Hver notar fótanuddtæki í dag? Og þetta svokallaða Ynternet, þar er bara klám og íþróttir. Eftir 10 ár verður hlegið að fólki sem setur ,,tölvufræðingur” á CV-ið sitt. En sem betur fer ertu líka klassískt menntaður. jamm
Hmmmm.. er ekki eitthvað lítið að gerast á þessari ágætu heimasíðu þessa dagana? Finnst nú eiginlega vera kominn tími á smá öppdeit!




Velkominn í hópinn félagi!
Nú verðum við að láta verða af því að dreypa eilítið á gömlu & skosku. Tilefnið er ærið!