Vefur Hreysisins í upptekt

Vefurinn okkar er í smávegis yfirhalningu. Við erum líka að skoða aðeins hvaða leiðir við ætlum að fara í birtingu mynda á vefnum. Við ákváðum að hætta áskrift að MobileMe frá Apple, enda kostnaðurinn kominn í 10 þús. miðað við núverandi gengi. Í staðinn væri hugsanlegt að nota Picasa, eins og hér fyrir neðan, en fyrir vídeó vitum við ekki alveg hvað er gott að nota. Youtube kemur auðvitað til greina en ýmislegt annað líka. Látið okkur endilega vita ef þið vitið um góða þjónustu til að leggja inn heimilisvídeóin sín.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Alveg ljóst að alltaf þarf að borga eitthvað. Picasaweb virðist sniðugt (líka fyrir myndbönd) en þar kostar 10 GB pláss $20 á ári og 40 GB kosta $75.

Flickr er auðvitað vinsælast - þar er líka hægt að geyma myndbönd (hámark 90 sek. löng). Fyrir ótakmarkað geymslupláss þarf að borga um $25 árlega.

Svo má nefna SmugMug (www.smugmug.com) sem lítur nokkuð vel út. Prísinn þar er um $40 á ári fyrir ótakmarkað pláss ljósmynda en $60 ef menn vilja líka geyma myndbönd.

Ég tek fram að ég hef ekki prófað neina ofantalinna lausna fyrir myndbönd en hef verið að skoða þetta aðeins undanfarið :)

Þú ert óþrjótandi þekkingarbrunnur, Valur. Aldrei kemur maður að tómu glasi hjá þér! Spurning með viskífund aftur ;)

Leave a comment

(required)

(required)