Borðað rúmlega hálf sjö!

Í gærkvöldi tókst okkur í Hreysinu að setjast að kvöldverðarborðinu kl. 18:42. Þetta er nýtt met og verður reynt að bæta þetta jafnt og þétt á næstunni og færa kvöldmatartímann framar á sólarhringnum. Við erum mjög hreykin með þetta og óskum eftir hamingjuóskum frá tryggum lesendum Hreysisins.
Annars  líður ævin hratt og örugglega hjá okkur. Nú er nýbyrjað árið 2008 (ég hlakka til að geta farið að skrifa 2009 á lyklaborð því það er töluvert einfaldara) og nú standa yfir próf og yfirferðir verkefna í MA og því skólastarf með rólegra móti þótt maður verði að sitja við dægrin löng. Strákarnir eru í sínum skólum sælir og glaðir og bráðum bætist það fimmta í hópinn, við verðum amma og afi og börnin flytjast út og biðja okkur um pössun reglulega.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Þið hættið ekki fyrr en þið samienið kvöldmáltíð og morgunverð. Ætli það heiti ekki Brupper á ensku?

Hjartanlega til hamingju! Vel af sér vikið; þá sjaldan þetta tekst á mínu heimili finnur maður hvað kvöldið verður mikið drýgra og maður þarf ekki að skutla börnunum beint í rúmið frá eldhúsborðinu…

Leave a comment

(required)

(required)