Amma Ingibjörg átti afmæli

Amma Ingibjörg heldur á nöfnu sinni Emilíu á skírnardaginn

Amma Ingibjörg heldur á nöfnu sinni Emilíu á skírnardaginn

Það eru svo mörg afmæli í mars að það nær lítilli átt. Alla vega nær maður varla að átta sig á þessu. Það er skammarlegt að hér hafi ekki verið sett upp mynd og smá hylling til móður minnar, ömmu Ingibjargar. Hún átti afmæli þann 6. mars síðastliðinn. Í tilefni af því seinkuðu þau hjónin suðurferð sinni þessa helgina til þess að geta tekið á móti börnum og fleirum í Þóranum á föstudagskvöldinu. Morguninn eftr þeystu þau svo suður til Reykjavíkur til þess að hitta fleira fólk, þrátt fyrir spá um aftakaveður. Það er óskandi að þau komist klakklaust heim.

Til hamingju með afmælið mamma!

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Ég get ekki orða bundist yfir þessum fegurðardísum og vil fyrir hönd þeirrar sem heitir bara Ingibjörg, þakka afmælisóskir. Sem betur fer frestuðum við suðurferðinni og áttum í staðinn yndislegt kvöld með börnunum okkar öllum og fleirum. Hvað er betra en þegar fólk safnast saman á heimili manns til að eta drekka og vera skemmtilegt. Suðurferðin var svosem ágæt líka þar vorum við einmitt við sömu iðju,eta drekka og vera skemmtileg. Það er gaman að hvoru tveggja, að vera gestur og gestgjafi þegar gleði ríkir. kv.HM

Leave a comment

(required)

(required)