Akranesleikar að hefjast

Frímann og Júlía á leið á Akranessleika

Frímann og Júlía á leið á Akranessleika

Nú eru Frímann og Júlía að leggja upp í ferð til Akraness til að taka þátt í Akranesleikum, sundmóti yngri aldursflokka, sem verður haldið um helgina. Frímann syndir eitt sund í dag, 100m bringusund, annað á morgun, 200m bringusund, og síðan þrjú sund á sunnudag, 200m skrið, 100m fjórsund og að lokum 100m skrið. Hann bindur helst vonir við að ná góðum árangri í 100m fjórsundi því hann er alveg að ná lágmarkstímanum sem þarf að fá til að komast á AMÍ, aldursflokkameistaramót Íslands, sem verður haldið hér á Akureyri í lok júní.

Hópurinn að fara að leggja í hann

Hópurinn að fara að leggja í hann

Júlía Ýr hefur staðið sig rosalega vel, er fyrir löngu farin að keppa á AMÍ og ÍM, og nú er svo komið að Sundsamband Íslands hefur augastað á henni sem einum af fulltrúum Íslands á Ólympíuleika æskunnar sem verða haldnir í sumar. Ekki slæm fyrirmynd fyrir Frímann og gott að hafa frænku sína til að leggja línurnar.

Ég ætlaði að reyna að komast sem fararstjóri á þetta mót til að geta fylgst með Frímanni, en aðrir feður urðu á undan. Við verðum því að láta okkur nægja að fylgjast með honum og Júlíu á heimasíðu mótsins. Þar koma úrslit inn jafnóðum og þau eru færð inn í mótatölvuna. Þau eru að verða nokkur mótin sem við höfum setið heima og fylgst með tölunum detta inn.

ÁFRAM FRÍMANN!

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

No comments yet.

Leave a comment

(required)

(required)