Afmælisdagur Ýmis
Ýmir varð fjögurra ára í dag. Langþráður sigur. Hann er búinn að bíða svooo lengi eftir þessu. Oft lyfti hann sigri hrósandi upp hönd með fjórum fingrum á lofti með sólskinsbros. Ekki orð, aðeins fjórir fingur upp í loft. Stórkostlegur árangur fyrir lítinn gutta. Í vídeóhorninu hér til hægri er hægt að sjá hvernig stubburinn vaknaði í morgun. Afsakið söng undirritaðs. Hann var nývaknaður til þess að gera og nauðsynlegt að syngja hægt og varlega.
Í myndasafninu má sjá myndir dagsins. Eitt af því sem stendur upp úr er mótorhjólaferð með Siggu Benediktsdóttur frá Svalbarðsströnd, frænku Benna bestavinar. Hún er matráður í MA og átti þessa stórgóðu hugmynd í dag að líta við í Hreysinu og fara lítinn rúnt með guttann.

Það var líka mjög gaman að fá kort frá Belgíu, frá Hilde vinkonu sem birtist hér á Íslandi í lok næsta mánaðar. Það verður gaman að sjá hana og Tómas loksins eftir langa bið.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.
Comments
ahhhhh alveg æðislegt video af kappanum. Ekkert smá stoltur fjögurra ára kjeppi
Við erum sem sagt loksins komin með net hér í Berlín og mín er búin að kaupa sér eine deutsche kommunikationstrainer þýskupakka sem á stendur: “der schnelle weg zur perfekten aussprache” jeiiiiii……
Svo er það skírn á morgun, hlakka mjög mikið til að heyra nafnið
Knús!
Takk fyrir kveðjurnar
Holland já, þvílíkt lið! Þeir bera rækilega af miðað við það sem ég hef séð. Mér fannst Þjóðverjar reyndar stórkostlegir á móti Pólverjunum en drulluslakir á móti Króötum. Hollendingar hafa hins vegar haldið ótrúlegum dampi og eru að taka Heimsmeistara og þá sem hefðu átt að verða heimsmeistarar í rahúið gersamlega.
Nafn dúllunnar okkar verður að sjálfsögðu birt hér á vefnum á morgun
Viel Glück mit den Ausspracheübungen, Sigga!




Aftur til hamingju með daginn
.

næs.
Ég varð nú bara hálf klökk við að horfa á videóið. Söngurinn ekkert til að skammast sín fyrir
Bestu kveðjur frá NL
Áfram HOLLAND (EM)
Eins og staðan er núna, holland 2-frakkland 0 hihi