Aðventan að hefjast…

… með öllu sínu. Árshátíð Menntaskólans í gær – tókst ágætlega – laufabrauð í Þóranum í dag og skreytingar utanhúss og innan um helgina. Í gær og nótt snjóaði töluvert þannig að jólaskapið fær byr undir a.m.k. annan vænginn.

 ashlid_vetur-027.jpg

 Myndin er tekin þann 9. desember fyrir fjórum árum (2003) í brekkunni fyrir neðan Akureyrarkirkju. Við sjáum þarna glitta í risið á Sigurhæðum og í fjarskanum sést Höpfnersbryggja.

If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.

Comments

Jiii hvað ég vona að þessi snjór verði ennþá um næstu helgi. Malín verður bara að fá að komast í tæri við svona lagað. Hana dreymir um snjóhúsa og snjókarlagerð enda fær hún ekki snjó hér hjá okkur. Hún hefur reyndar ekki vaðið mikla skafla um æfina. Í fyrra fékk hún einn snjódag heima en annars var meira og minna marautt :( .
Ótrúlega fúlt og sérstaklega mikið fúlt fyrir 3 ára grallara.

Vona að þið séuð öll sæmilega spræk og laus við flensu.
Hér hefur verið mikið pastapæla síðustu 4 eða 5 vikurnar. Agalega erfitt að ná þessari drullupest úr sér :(

Aðventukveðja frá Hollandinu.
Dagný og co.
(nýjar myndir á BL)

Gaman að heyra frá þér Dagný. Ég vona líka að snjórinn verði hér áfram þegar þið komið. Við erum búin að fá andskotans nóg af óstöðugu veðri undanfarið. Lítið endilega við í heimsókn. Það yrði mjög gaman að sjá ykkur.

Leave a comment

(required)

(required)