3ja bráðum 4ra
Dúllan okkar verður fjögurra daga gömul í fyrramálið. Hún hefur nú braggast ótrúlega mikið þrátt fyrir ungan aldur og er farin að sýna karakter. Hún er mjög, mjög ákveðin og lætur miskunnarlaust vita skoðun sína á hinu og þessu. Hún er svo sjálfstæð að hún losaði sig við það sem eftir var af nafnlastrengnum núna áðan og er farin að opna augun mjög mikið og horfa á heiminn í kringum sig. Ef smellt er á myndina hér fyrir neðan má sjá lítið myndband (í nýjum glugga) sem ég tók af henni uppi á fæðingardeild nokkrum klukkutímum eftir að hún fæddist (ég er að leita að betri aðferð við að birta myndbönd hér á vefnum).
Ýmir hefur orðið fyrir stökkbreytingu eftir að við komum heim með þá litlu. Hann, þessi písl sem nánast ekkert er, hefur stækkað fyrir augum okkar og er orðinn að trölli sem varla er hægt að lofta frá jörðu. Ég fer yfirleitt með hann á klósett þegar við förum að sofa en nú er allt í einu orðið mjög erfitt að færa þennan beljaka úr stað.
Ég gæti sagt frá ýmsu (eins og áður), t.d. viðburðaríkum fyrsta degi heima sem snerist upp í það að ég skilaði þeim mæðgum aftur upp á fæðingardeild og við skiptum liði í strákar vs. stelpur fyrstu nóttina; eða t.d. því hvernig gærkvöldið fór í að ganga með litlu dísina gargandi um gólf brjálaða úr hungri þar til ég fór eftir “ábót” og staupi upp á fæðingardeild o.s.frv. En ég er að fara í rúmið með stelpunum mínum. Góða nótt.
If you enjoyed this post, please consider to leave a comment or subscribe to the feed and get future articles delivered to your feed reader.





Jiii hvað sumir eru mikið krútt

Innilega til hamingju enn og aftur.
Hlökkum til að sjá ykkur áður en árið er liðið. Æjjj..stubban ykkar verður þá orðin hálfs árs. Vona að þið verðið dugleg að setja myndir af henni og ykkur á netið.
Bestu kveðjur úr boooongoblíðu, hita og sól.
Dagný og co í NL