Tónlist
Volgur fimmtudagur en sjóðandi föstudagur
Þetta sumarið hef ég verið ótrúlega duglegur að fara á fimmtudagsdjassinn eða hina heitu fimmtudaga á listasumri hér á Akureyri. Ég byrjaði á að fara með pabba á Sigurð Flosa og félaga sem var hreint ágætt. Síðan fórum við Sverrir Páll og Arnar á tríó Snorra S. þar sem yfirskriftin var Chet Baker. Þetta eru [...]



