Archive for June, 2009
Ýmir Haukur er orðinn 5 ára!
Þetta er að verða ótrúlegt. Hér situr maður og börnin eiga orðið afmæli mörgum sinnum á ári. Núna er það Ýmir Haukur. Hann er orðinn fimm ára. Ég er búinn að kenna honum að reka fimm fingur framan í fólk og segja stoltur: Ég er með fimm háskólagráður! Þessi litli stubbur er orðinn fimm ára. [...]
Glæsileg Akranesferð
Nú eru Frímann og Júlía komin heim eftir góða ferð til Akraness með Óðni. Frímann náði bronsi í boðsundi í 200m skriðsundi og hefði líka átt að fá silfur í öðru boðsundi, en þeir gerðu ógilt. Í einstaklingssundgreinunum stóð hann sig mjög vel og er aðeins hársbreidd frá því að komast inn á AMÍ. Það [...]
Hvað gerist ef Vatnajökull hverfur?
Þá verður Langjökull stærsti jökullinn á Íslandi. Þetta sagði Frímann einhvern tíma eftir að hafa heyrt einhverja svartsýnisspána í útvarpinu.
Við vorum að horfa á þáttinn um jörðina núna áðan. Maður verður ekki beint bjartsýnn á komandi tíma.
Akranesleikar að hefjast
Nú eru Frímann og Júlía að leggja upp í ferð til Akraness til að taka þátt í Akranesleikum, sundmóti yngri aldursflokka, sem verður haldið um helgina. Frímann syndir eitt sund í dag, 100m bringusund, annað á morgun, 200m bringusund, og síðan þrjú sund á sunnudag, 200m skrið, 100m fjórsund og að lokum 100m skrið. Hann [...]
Ferming Júlíu Ýrar – Myndir
Hér koma myndir úr fermingarveislu Júlíu Ýrar. Ég biðst velvirðingar á ruglaðri röð myndanna. Myndagalleríið, sem er innbyggt í WordPress-kerfið sem ég nota hér, vill ekki þýðast mig.



