Archive for April, 2009

Fyrstu skref Emilíu Ingibjargar

Við vorum að leika okkur með Emilíu inni í stofu og ákváðum að taka það upp á vídeó. Við hittum þá nákvæmlega á það augnablik sem hún tók fyrstu skrefin. Smellið á HQ á youtube-stikunni til að sjá myndbandið í aðeins betri gæðum.


Emilía Ingibjörg orðin eins árs

Emilía Ingibjörg er orðiin eins ár í dag, sumardaginn fyrsta. Það er alveg ótrúlegt, þótt hún hafi reyndar verið 11 mánaða ótrúlega lengi.
Píslin er aðeins farin að dafna aftur eftir smávegis bakslag reyndar í nokkra daga um daginn þegar það leit út fyrir að hún ætlaði að hefja ælutímabil mikið enn og aftur. En það [...]


Django djass per excellance – Stochelo Rosenberg

Ef þetta er ekki snilld þá veit ég ekki hvað snilld er. Hér leikur Stochelo Rosenberg (fæddur 1968) “rythme futur” sem er, held ég, eftir Django Reinhard sjálfan. Ótrúleg leikni.