Archive for March, 2009
Tallinn á dagskrá í apríl
Dagana 14. til 18. apríl verðum við Jónas í Tallinn í Eistalndi. Þarna eigum við að vera fulltrúar ferðamálakjörsviðs MA í tilefni af því að kjörsviðið fékk Evrópumerkið árið 2007. Þetta verður mjög veglegt, virðist vera, og við hlökkum gríðarlega til báðir tveir. Svo er líka kominn tími til að við Jónas förum saman til [...]
Góðir gestir og mikil útivist
Nú eru María og Gulli í heimsókn á Akureyri með krakkastóðið og stunda skíði og sundlaugar af kappi. Við njótum þess auðvitað í botn sjálf og höfum smitast af útisýkinni.
Tjáningarþörf Ýmis
Ýmir teiknar allan daginn, syngur og trallar og spinnur upp sögur. Nú hefur dansinn tekið við, en hann kallar það að herma eftir lögum.
Amma Ingibjörg átti afmæli
Það eru svo mörg afmæli í mars að það nær lítilli átt. Alla vega nær maður varla að átta sig á þessu. Það er skammarlegt að hér hafi ekki verið sett upp mynd og smá hylling til móður minnar, ömmu Ingibjargar. Hún átti afmæli þann 6. mars síðastliðinn. Í tilefni af því seinkuðu þau hjónin [...]
Unnar á afmæli í dag
Jahá, Unnar Þór Bachmann á afmæli í dag og hefur ekki alveg náð þremur tugum ára. Hann er góður vinur en einnig kjörsonur bæði fjölskyldnanna í Byggðavegi og Þórunnarstræti og auðvitað fær hann myndasýningu eins og önnur afmælisbörn. Njótið heil og njótt þú, Unnar! Til hamingju með daginn!



