Archive for September, 2008
Íþróttamaður niður í tær
Já, ég held að allir geti verið sammála um að ég sé frábær íþróttamaður og það alveg fram í fingurgóma og niður í tær. Ég spila varla svo körfubolta að ég ekki brjóti á mér fingur og í dag sló ég öll met. Ég synti fjögur hundruð metra og braut á mér tá! Lafmóður skreið [...]
Frímann Benedikt – fyrsta stórafmælið
Já, það hefur verið skammt milli stórviðburða þetta árið. Fæðing dóttur, áttræðisafmæli ömmu í Sunnuhlíð, skírn Emilíu Ingibjargar, afmæli Ýmis Hauks, fertugsafmæli Svans, þrítugsafmæli Steinlaugar systur, lát ömmu í Sunnuhlíð – sem var jörðuð í gær – og nú tíu ára afmæli Frímanns Benedikts í dag.
Frímann er nú byrjaður í fimmta bekk Brekkuskóla og plumar [...]
Amma í Sunnuhlíð látin
Veröldin hefur breyst. Eitt af kennileitunum er horfið. Varða hefur verið tekin niður og steinarnir sem mynduðu hana settir aftur á sinn stað. Amma og afi í Sunnuhlíð eru nú bara afi í Sunnuhlíð. Gög og Gokke eru nú bara Gög. Hvernig virkar það? Það er erfitt að kyngja því að amma í Sunnuhlíð, sem [...]



