Archive for August, 2008

Fjögurra mánaða

Hún er lítil en samt stór, hún er létt en samt þung, hún er ung en samt fjögurra mánaða „gömul“ – í dag! Já, hún á afmæli í dag og er nákvæmlega fjögurra mánaða. Til hamingju með daginn Emilía Ingibjörg!


Svanur kominn í hóp fertugra

Nú er Svanur systrungur minn orðinn fertugur. Sigga í Áshóli, kona hans, hélt honum heljarinnar veislu á túninu í Áshóli í gærkvöldi, þann 16. ágúst. Ég hélt auðvitað ræðu af þessu tilefni. Hún fylgir í heild sinni hér fyrir neðan og þar fyrir neðan nokkrar myndir:
14. ágúst 2008. Jóhann Svanur fertugur
Fyrir tæpu ári stóð ég [...]


Haustdagar

Ýmir fór í leikskólann í dag og hefur þar með lokið sumarfríinu sínu. Hann er dauðfeginn.


Volgur fimmtudagur en sjóðandi föstudagur

Þetta sumarið hef ég verið ótrúlega duglegur að fara á fimmtudagsdjassinn eða hina heitu fimmtudaga á listasumri hér á Akureyri. Ég byrjaði á að fara með pabba á Sigurð Flosa og félaga sem var hreint ágætt. Síðan fórum við Sverrir Páll og Arnar á tríó Snorra S. þar sem yfirskriftin var Chet Baker. Þetta eru [...]


Breytt fyrirkomulag mynda

Við ætlum að breyta uppsetningunni á myndasafninu okkar og færa það frekar inn hjá Apple. Smellið á hnappinn “Nýjar myndir” hér fyrir ofan til að sjá myndirnar þar.