Archive for June, 2008
Sanngjarnt
Já, það verður víst að teljast svo þótt það hafi verið erfitt á að horfa. Spánverjarnir voru bara miklu betri allan tímann, því miður. Eins og ég skrifaði í hálfleik þá vorum við búin að undirbúa gríðarlega veislu hér til heiðurs Þjóverjum og Frímanni eldra í leiðinni sem er sextugur í dag(!), en svo fór [...]
0 – 1 í hálfleik
Mér líst ekkert á! Ég er búinn að drekka rándýrt rauðvín í tilefni dagsins eins og fórn til þýska liðsins og veifa þýska fánanum í erg og gríð en ekkert gengur…
Hvað þarf til? Ég sit áfram á nálum og naga neglur.
Emilía Ingibjörg tveggja mánaða
Þann 23. júní átti Emilía Ingibjörg tveggja mánaða afmæli. Þetta litla myndband er í tilefni þess:
Hvar ertu nú?
Já, Arnar, hvar ertu nú? Nú situr maður einn og verður sér til skammar fyrir framan sjónvarpið. Þjóðverjar leika á morgun við Tyrki og ég er strax farinn að kvíða fyrir. Nú væri gott að eiga félaga góðan til að henda sér með fyrir framan kassann og geta einbeitt sér að því að koma í [...]
Emilía Ingibjörg tveggja mánaða gömul
Já, dúllan okkar hún Emilía Ingibjörg (maður er enn að æfa sig að skrifa þetta) er orðin tveggja mánaða. Hún dafnar ágætlega þótt ekki þyngist hún hratt. Hún hefur ælt mjög miklu undanfarið og nokkuð ljóst núna að það hefur ekkert með mjólkuróþol að gera. Hún ælir jafnmikið þótt Brynhildur hafi klippt algerlega á alla [...]



