Archive for May, 2008
Fínt myndband
Eins og ljóð eftir Walt Whitman. Lífsgleði hrein og sönn! Mér skilst að þetta hafi verið bannað einhvers staðar. Ótrúlegt.
Strákar
Strákarnir hafa ekki fengið verðskuldaða athygli á þessum vef undanfarið. Hvað veldur er erfitt að segja ;o) Frímann klárar skólann núna í vikunni og æfir sund fjórum sinnum í viku, raunar fimm sinnum ef við teljum skólasundið með. Þrisvar í viku er byrjað á klukkutíma þrektíma, ýmist úti eða inni, og síðan er synt í [...]
Mánuður liðinn
Já það hefur verið margt að gerast hér í hreysinu undanfarið, þótt Hreysið (vefurinn) beri þess engin merki. Síðasta færsla frá mér er frá 7. maí og nýjustu myndirnar sýnast mér vera frá fjórða maí. Þetta er engin frammistaða hjá atvinnumanni í upplýsingatækni. Ein ástæða þess að ég hef staðið mig svona illa er sú [...]
Grillmeistarinn berst við salmonelluna
Já, það er ekki fyrir neina eymingja að grilla kjúkling. Ég grillaði ofan í familíuna í gærkvöldi og það fór auðvitað svo að nokkrir bitar þurftu að fara oftar en einu sinni á grillið til þess að ná að stikna inn að beini. Borðhaldið endaði svo eins og alltaf á því að maður varð sprengsaddur [...]
Heil nótt
Já, þetta var fín nótt. Það var sofið í alla nótt. Dúllan okkar sofnaði fyrir miðnættið í vöggunni sinni og vaknaði ekki fyrr en klukkan hálf sjö. Allir útsofnir bara. En maður fann samt að það var komin ansi mikil þörf á þessu. Flestar nætur hingað til hafa verið mjög brotakenndar eins og eðlilegt er.
Þegar [...]



