Archive for April, 2008
Dúllan okkar er vikugömul
Í dag hélt dóttir okkar og systir upp á vikuafmæli sitt. Hún var að sjálfsögðu klædd í kjól og tilheyrandi og borin í kóngastól út um allt. Hún fékk sérstaklega valda mjólk að drekka og sérvalda vöggu að sofa í. Hún fékk svo meira að segja að fara í sína fyrstu sturtu og fannst það [...]
Amma í Sunnuhlíð áttræð
Það er stór dagur í dag. Einn af þeim stóru, stóru. Amma, sem er fædd þann 27. apríl 1928, er orðin áttatíu ára. Hún er jafnaldra Che Guevara. Þau hefðu verið saman í bekk hefðu örlögin ekki snúið því á annan hátt. Árið ‘28 hófst valdatímabil Stalíns í Rússlandi og Nasista í Þýskalandi. Gott að [...]
3ja bráðum 4ra
Dúllan okkar verður fjögurra daga gömul í fyrramálið. Hún hefur nú braggast ótrúlega mikið þrátt fyrir ungan aldur og er farin að sýna karakter. Hún er mjög, mjög ákveðin og lætur miskunnarlaust vita skoðun sína á hinu og þessu. Hún er svo sjálfstæð að hún losaði sig við það sem eftir var af nafnlastrengnum núna [...]
Mörgu frá að segja
Já, úff hvað ég hef frá mörgu að segja og úff hvað ég verð að bíða með að segja frá svona mörgu. Ég er einn heima með strákunum. Stelpurnar eru uppi á sjúkrahúsi í góðu yfirlæti. Já þetta var stelpa, lítil yndisleg snúlla, lilla, stubbulína. Ótrúlega lík Ými, finnst okkur, enda stutt síðan við eignuðumst [...]
Farin uppeftir…
Fyrst er morgunkaffi hjá Ými í leikskólanum og síðan gangsetning á FSA. Spennan eykst…



