Archive for February, 2008
Orkuskot
Er nokkuð orkumeira eða hollara en lítri af kók og kalt slátur. Þetta virkar a.m.k. ágætlega við lesturinn.
Búinn að fara yfir 100 spurningar
Á þá 79 eftir. Ég er að vinna í því að taka síðasta prófið í MCSA næsta föstudag. Ég verð að standast þetta fjandans próf. Fleiri manns hafa fallið á þessu og þetta er talið erfiðasta prófið. Ég er að hugsa um að hvíla mig á tölvuskjánum og skoða núna spurningabanka sem ég á á [...]
Mamma, sjáðu!
Ýmir skreið upp í til okkar í morgun og sagði svefndrukkinn: “Mamma, sjáðu! Ef ég loka augunum þá sé ég apa!”. – “Var þig að dreyma apa?” – “Já, ég dreymdi þá. Þeir eru inni í augunum mínum.”
Skrítnir dagar í Hreysinu
Það hefur verið nóg að gera hér í Hreysinu undanfarið. Ég hafði ætlað að njóta nýs upphafs í vinnunni, nánast ekki með neina kennslu og nægur tími til að vinna að ýmsum brýnum verkefnum. Það hefur hins vegar verið þannig að Frímann hefur verið heima núna í átta daga samfleytt, ýmist fárveikur eða bara létt [...]



