Archive for January, 2008

Sálmasull

Eins og einhverjir kannast við þá syng ég í kirkjukór. Stundum þarf maður að reyna að æfa sig heima, sérstaklega núna þegar ég er eitthvað að rembast við að syngja bassa eftir að hafa verið árum saman í tenór. Þá getur maður farið inn á rafsálma kirkjunetsins og sótt sér midi-skrár. Á meðan ég var PC-notandi gat [...]


Borðað rúmlega hálf sjö!

Í gærkvöldi tókst okkur í Hreysinu að setjast að kvöldverðarborðinu kl. 18:42. Þetta er nýtt met og verður reynt að bæta þetta jafnt og þétt á næstunni og færa kvöldmatartímann framar á sólarhringnum. Við erum mjög hreykin með þetta og óskum eftir hamingjuóskum frá tryggum lesendum Hreysisins.Annars  líður ævin hratt og örugglega hjá okkur. Nú [...]


Trúðafélagið

Við vorum að ræða jólin við hádegisverðarhlaðborðið hér í hreysinu áðan og Svanur Berg, vinur og frændi Frímanns, lýsti áhyggjum af því að einn bekkjarbróðir hans fær ekki að taka þátt í neinu jólahaldi því foreldrar hans eru Vottar. Frímann tók undir þetta og bætti við að hann hefði heyrt að til væri eitthvert sérstakt [...]


Gleðilegt ár!

Við í Hreysinu óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir það gamla. Bestu kveðjur úr Byggðaveginum.