Archive for December, 2007

Strúturinn

Nú nálgast áramótin og undirbúningur fyrir áramótaveislu er hafinn. Hólabrautarsöfnuðurinn allur eða því sem næst verður samankominn í Gilsbakka á Hauganesi og þar verður snæddur humarfylltur skötuselur (fagurfræðinnar vegna er engin mynd af þeim mat) og í aðalrétt strútur (þeir eru of stórir til að hafa á mynd á svona litlum vef).Þetta verður ekki síst [...]


Myrkur

Myrkrið er alltumlykjandi á norðurhjara þessa dagana. Sérstaklega núna þegar farið er að hlána og rigna aftur. Það grúfir yfir þykkt og þungt og þyngir skap. Þá er erfitt að vakna, erfitt að vinna og erfitt að koma heim.
Best að sofa.


Kraftaverk í Brekkuskóla

Við feðgar vorum að koma af söngleiknum Kraftaverk í Betlehemstræti sem krakkar í Brekkuskóla eiga heiðurinn af ásamt Arnóri Vilbergssyni og Guðjóni Davíð Karlssyni. Þetta var mjög skemmtilegt auðvitað en það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þetta að hér sjáum við hreinræktaðan helgileik í takt við það sem maður átti kannski frekar að venjast [...]


Feluleikur

Ágúst Már (4) grúfir sig inni á klósetti bak við hurð og byrjar að telja. Ýmir (3) öskrar þá innan úr herbergi: “Þú mátt ekki byrja að telja strax! Ég er ekki búinn að fara undir sængina.”


Vefnaður er vandi

Það er hreinlega ótrúlegt hvað óheppnin eltir mig. Ég hef tekið að mér ritarastörf fyrir bæði foreldraráð Brekkuskóla og svæðisráð foreldra grunnskólabarna á Akureyri sem við köllum Samtaka. Í dag var fundur hjá Samtaka þar sem ég ætlaði að fara yfir vefinn http://samtaka.org og virkni hans. Ég ætlaði að undirbúa mig kvöldið áður – eins [...]