Archive for October, 2007

Ammæli

Ég á afmæli í dag. Tek í anda á móti afmæliskveðjum. Gaman þó ef einhverjar kæmu hér inn á Hreysið í formi athugasemda (svona til prufa a.m.k. ;o)


Óvitar góðir

Sáum óvitana áðan hjá LA. Vorum kannski gestir 5558-5565, þ.e. Valdi, Helena, Júlía og Kristján fóru um leið og við tókum Frímann með okkur. Frímann og Kristján horfðu opinmynntir á það hvernig leikarar gátu stungið haus út um glugga vinstra megin á sviðinu og hausinn á þeim kom út hægra megin. Stórvel gert. Sýningin tókst [...]


Grein dagsins…

Grein dagsins er “Hannes gegn heiminum” eftir Guðna Elísson í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Ótrúlegt hvað þessi maður (Hannes) fær að vaða uppi í villu og svíma endalaust. Svo er þessi maður háskólaprófessor og hugmyndafræðingur ungra sjálfstæðismanna. Stórkostlegt!En ég mæli með þessari grein Guðna.


Slátur í dag

Í dag er sláturdagur. Læt fylgja mynd frá október 2004. Gaman… 


Skólamál

Umræða um skólamál hefur tekið stökk í skólum landsins nú á síðustu misserum. Skiptast menn þar mjög í tvö horn. Í suðausturhorninu eru þeir sem vilja sjá breytingar á núverandi fyrirkomulagi, t.d. uppbrot stundatöflu í anda Grundarfjarðarmódelsins (50% fastir tímar – 50% verkefnatímar), aukið vægi símats en minnkað vægi skriflegra lokaprófa, samspyrðingu faga, aukna samvinnu [...]