Ný frétt
hættur við að flytja. Var of seinn að forða mér og var rukkaður fyrir vefsvæðið. Held því ótrauður áfram.
Hreysið að flytja
Hér með tilkynnist að Hreysid.com hefur verið fært á slóðina http://hreysid.wordpress.com
Do, re, mi…
Við Ýmir erum enn þá veikir heima síðan á sunnudag. Áðan söng Ýmir fyrir mig Doremíið eins og þau eru að læra það í leikskólanum. Þegar hann var búinn að syngja þetta varð ég að prófa Youtube og sýna honum aðeins úr Sound of Music.
Honum fannst þetta að sjálfsögðu frábært og sagði. “Þau eru svei mér dugleg að syngja doremí”. En þarna rakst ég á annað vídeó, hefði sjálfsagt ekkert rambað á það nema fyrir það að það tengist Belgíu, og finnst það ekki síðra en hitt. Mjög góð hugmynd.
Það er dásamlegt að fylgjast með fólkinu á sínu hversdagsrölti detta allt í einu inn í dans- og söngvamynd á miðjum degi, og það aukinheldur dans- og söngvamyndina.
Við þetta tækifæri verð ég að setja hér inn tengil á enn annað hópatriði sem mér finnst alveg frábært. Um er að ræða félaga okkar í Saint-Lodewijkscollege í Brugge í Belgíu sem héldu svona stórglæsilega upp á 175 ára afmæli skólans.
Fyrsti kúkurinn
Emilía var áðan að kúka í klósettið í fyrsta sinn
Frábært afrek!
Fyrsti snjórinn – Eerste Sneeuw
- Fyrsti snjórinn – Það fór um mann þegar litið var út í morgun
- Napurlegt
- Krakkarnir voru mjög hrifnir
- Á ekki að borða þetta?
- Yndislegt úti
- Gaman að moka
- Það var byrjað á því að moka pallinn
- Gulrótin of freistandi
Úff hvað það var napurlegt að líta út í morgun. Ég hrökk við með viðbjóði en krakkarnir glenntu upp augun í gríðarlegum fögnuði. Ég hef aldrei séð Frímann koma jafn kátan fram úr rúminu. „JESS!!“ Sá var glaður. Auðvitað drifu þau sig út.











